Fotbolti.net
03.09.09 - 18:01
Hafliði Breiðfjörð

Jimmy Walker til Tottenham (Staðfest)

Jimmy Walker.

Jimmy Walker.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham fékk markvörðinn Jimmy Walker í sínar raðir í dag þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður en hann var félagslaus eftir að hafa hætt hjá West Ham á síðustu leiktíð og mátti því skipta.
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham var ákveðinn í að fá sér nýjan markvörð í félagaskiptaglugganum til vara fyrir Carlo Cudicini en Heurelho Gomes er meiddur.

Redknapp hafði verið orðaður við David James markvörð Portsmouth í félagaskiptaglugganum en ekkert gerðist í slíku áður en glugginn lokaði.

Walker var í marki West Ham þegar það komst upp úr ensku úrvalsdeildinniárið 2005 en undanfarnar leiktíðir hafði hann verið á eftir Robert Green í goggunarröðinni.

Hann var meirihluta síðustu leiktíðar á láni hjá Colchester í 1. deildinni en batt svo enda á fimm ára dvöl sína hjá West Ham á síðustu leiktíð.

Hann lék 476 leiki með Walsall á 11 árum þar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.