Fotbolti.net
03.09.11 - 11:55
Mist Rúnarsdóttir

Sandra Sigurðardóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Sögunni „endalausu\" er lokið og Sandra er komin aftur í Stjörnuna

Sögunni „endalausu\" er lokið og Sandra er komin aftur í Stjörnuna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir er komin með leikheimild með Stjörnunni og verður í leikmannahópi liðsins sem leikur gegn Grindavík síðar í dag.
Eins og knattspyrnuáhugafólk er eflaust farið að þekkja þá hefur Sandra staðið í stappi við sænska liðið Jitex um að losna frá félaginu.

Sandra vildi meina að Jitex hefði ekki staðið við gerða samninga og vildi því fá sig lausa og snúa aftur í Stjörnuna. Svíarnir voru ekki á því og stóðu fastir á því að þeir hefðu staðið við sitt.

Málinu var vísað til FIFA sem úrskurðaði Söndru í vil og gaf heimild á félagaskipti. Frá FIFA fór málið til Knattspyrnusambands Íslands og í dag fékk Sandra leikheimild með sínu gamla félagi.

„Loksins, loksins, er þetta komið. Það er frábært og þá getur maður hætt að hugsa um þetta. Það verður mjög gaman að vera með Stjörnunni í síðustu tveimur leikjum mótsins,\" sagði Sandra Sigurðardóttir við Fótbolta.net aðspurð um félagaskiptin.

Hún verður eins og áður kom fram í leikmannahópi Stjörnunnar sem heimsækir Grindavík á eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.