Fotbolti.net
03.10.10 - 11:23
Hafliði Breiðfjörð

Ásmundur samdi við Fjölni til þriggja ára (Staðfest)

Ásmundur Arnarsson.

Ásmundur Arnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásmundur Arnarsson verður áfram þjálfari 1. deildarliðs Fjölnis en þetta var staðfest á vef félagsins í gærkvöld.
Ásmundur skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í vikunni en hann hefur þegar þjálfað liðið undanfarnar sex leiktíðir.

Ásmundur hafði skrifað undir samning við félagið haustið 2008 sem var að renna út en hefur nú framlengt út árið 2013.

Hann hefur stýrt Fjölni síðan í nóvember 2004 og hefur því lokið sex leiktíðum með liðið. Tvisvar hefur hann komið þeim í úrslit bikarins og liðið lék í efstu deild í tvær leiktíðir, 2008 og 2009.

Gengi liðsins undir hans stjórn þótti nokkuð gott í sumar en litlar væntingar voru gerðar til þeirra enda margir leikmenn horfnir á braut eftir fallið úr Pepsi-deildinni haustið 2009. Þrátt fyrir það náði liðið 4. sæti 1. deildar, aðeins þremur stigum frá liði Þórs sem endaði í 2. sæti og komst í Pepsi-deildina.

Þá var einnig tilkynnt í gær að Þorleifur Óskarsson þjálfar kvennalið félagsins áfram og hefur samið til tveggja ára.

Heimild: Vefur Fjölnis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.