03.10.10 - 12:25
Alexander Freyr Tamimi
Sven-Göran Eriksson tekinn við Leicester (Staðfest)

Sven-Göran Eriksson.

Mynd: Getty Images

Sven-Göran Eriksson.

Mynd: Getty Images
Leicester City hefur staðfest að Sven-Göran Eriksson hafi verið ráðinn sem knattspyrnustjóri liðsins. Félagið lét Paulo Sousa taka pokann sinn á fimmtudag og voru þeir snöggir að finna staðgengil. Eriksson skrifaði undir tveggja ára samning við Leicester.
Þessi fyrrum landsliðsþjálfari Englands sagðist vera hæstánægður með að hafa tekið þetta verkefni að sér.
,,Ég er gríðarlega ánægður með að vera nýr knattspyrnustjóri Leicester City,\" sagði Eriksson á opinberri heimasíðu félagsins.
,,Þessi áskorun er mjög spennandi og ég hlakka til að vinna með leikmönnunum, hitta stuðningsmennina og ná vonandi frábærum árangri með Leicester City.\"
,,Leicester er félag með frábæra arfleið og mikið stolt. Ég vonast til að við getum saman hlakkað til að halda áfram að skrifa sögu þessa félags með afrekum mínum.\"

Heimild: Sky