03.10.10 - 14:36
Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Kristjánsson framlengir við Breiðablik til 2015 (Staðfest)

Ólafur Helgi Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2015 eða til fimm ára til viðbótar.
Þetta var staðfest á lokahófi félagsins í gærkvöld en svo langir samningar við þjálfara eru sjaldséðir í fótboltanum og greinilegt að báðir aðilar eru ánægðir með farsælt samstarf.
Ólafur hafði tekið við liðinu í júlí árið 2006 eftir að Bjarni Jóhannsson hætti með liðið. Hann hefur því stýrt liðinu í fjögur og hálft ár nú þegar.
Undir hans stjórn hefur Breiðablik unnið bikarmeistaratitilinn á síðasta ári og varð svo Íslandsmeistari á dögunum.
Ólafur lék um árabil með FH og KR hér á landi áður en hann fór og lék með AGF í Árósum. Þar þjálfaði hann einnig unglingalið félagsins og var aðstoðarþjálfari AGF í dönsku úrvalsdeildinni árið 2004. Hann tók við Fram sumarið 2004 en hætti með liðið haustið 2005.