03.11.09 - 15:05
Hafliði Breiðfjörð
Hólmfríður semur við Philadelphia Independence (Staðfest)

Hólmfríður Magnúsdóttir verður í bandarísku atvinnumannadeildinni á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir hefur tekið ákvörðun um að semja við bandaríska liðið Philadelphia Independence sem eru nýliðar í atvinnumannadeildinni þar í landi næsta sumar.
Þetta staðfesti Hólmfríður við Fótbolta.net í dag en hún mun um næstu helgi leika sinn síðasta leik fyrir Kristianstad í Svíþjóð og koma svo hingað til lands þar sem hún skrifar undir tveggja ára samning við Philadelphia Independence.
Hún mun svo æfa hér á landi fram í mars þegar hún fer með íslenska landsliðin á Algarve Cup í Portúgal en eftir þá ferð fer hún til Bandaríkjanna og hefur æfingar með sínu nýja liði. Mótið í Bandaríkjunum stendur frá apríl og fram í ágúst en eftir það má hún fara á láni til annars liðs kjósi hún það.
Hólmfríður er 25 ára gömul og leikur sem vinstri kantmaður. Hún gekk til liðs við Kristianstad í Svíþjóð síðasta vetur og átti fast sæti í liðinu. Hún á fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins og hefur skorað 15 mörk í 50 leikjum.
Rætt verður við Hólmfríði hér á Fótbolta.net síðar í dag.