Fotbolti.net
04.01.07 - 10:24
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Jared Borgetti til Cruz Azul (Staðfest)

Fyrrum liðsfélagar Borgetti fagna marki hans þegar hann var hjá Bolton

Fyrrum liðsfélagar Borgetti fagna marki hans þegar hann var hjá Bolton

Canon

Mynd: Getty Images

Mexíkóinn Jared Borgetti, fyrrum sóknarmaður Bolton, hefur gengið til liðs við Cruz Azul í heimalandinu og vonast þar með að vinna sér sæti í landsliðinu á nýjan leik, þrátt fyrir að hann hafi ætlað að hætta að spila fyrir þjóð sína eftir HM í sumar.
,,Ég sagði að ég ætlaði ekki að spila meira fyrir landsliðið en núna myndi ég vilja hætta frekar eftir Copa America eða Gold Cup. Ég veit að ég verð ekki í áætlun þjálfarans fyrir næsta HM svo að ég býst við að vera kallaður í næstu keppni ef ég stend mig vel með Cruz Azul," sagði Borgetti.

,,Ég er mjög ánægður að vera kominn heim og sérstaklega þar sem svo mikilvægt félag eins og Cruz Azul höfðu áhuga á mér. Ég er mjög ánægður að fá tækifæri til að spila í Mexíkó aftur, ég saknaði landsins mikið eftir að hafa verið hjá Bolton og Al Ittihad."

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.