Fotbolti.net
04.01.07 - 15:40
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Pétursson áfram hjá KR (Staðfest)

Guðmundur Pétursson áfram hjá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Guðmundur Pétursson verður áfram í herbúðum KR en hann kom til félagsins á láni frá ÍR í lok júlí síðastliðnum og kláraði síðastliðið sumar með Vesturbæjarfélaginu.
Guðmundur sem er uppalinn hjá ÍR hafði skorað tvö mörk fyrir félagið í ellefu leikjum í annarri deildinni síðastliðið sumar áður en að KR-ingar fengu hann til liðs við sig rétt áður en að íslenski félagaskiptaglugginn lokaðist 31.júlí.

Guðmundur sem er tvítugur skoraði eitt mark fyrir KR í þremur leikjum í Landsbankadeildinni en það kom á lokamínútunum í lokaumferðinni gegn Val og tryggð það KR-ingum Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.