04.01.07 - 21:06
Sigurjón Sumarliði Guðmundsson
Luke Chadwick til Norwich (Staðfest)

Luke Chadwick byrjaði feril sinn hjá Manchester United.

Mynd: Getty Images

Luke Chadwick byrjaði feril sinn hjá Manchester United.

Mynd: Getty Images
Norwich hafa gengið frá kaupum á Luke Chadwick hægri kantmanni Stoke fyrir 200 þúsund pund. Samningurinn sem hann skrifaði undir mun halda honum hjá liðinu í tvö og hálft ár. Chadwick lék á sínum yngri árum með Manchester United og var hann oft á tíðum varaskeifa fyrir David Beckham.
Þessi 26 ára leikmaður kom á láni til Norwich í nóvember og eftir fína frammistöðu í fyrsta leik sínum gegn Ipswich meiddist hann á hné og varð að fara af velli. Chadwick hefur ekki getað spilað síðan og mun ekki snúa aftur fyrr en eftir mánuð.
,,Fólk sá í hans fyrsta leik hversu góður leikmaður hann getur verið. Hann er leikmaður sem hefur margt til brunns að bera,’’ sagði Peter Grant stjóri Norwich eftir að gengið hafði verið frá kaupunum.
Hann bætti síðan við: ,,Það eru um fjórar vikur í það að hann snúi aftur. Vegna meiðslana og hvar þau eru staðsett, þá hefur þetta verið vandamál fyrir hann,’’ sagði Grant.

Heimild: BBC