04.01.08 - 20:30
Magnús Már Einarsson
Danny Mills og Villa til Derby (Staðfest)

Danny Mills í baráttunni.

Mynd: Getty Images

Danny Mills í baráttunni.

Mynd: Getty Images
Derby County hefur gengið frá samningum við tvo nýja leikmenn en liðið hefur keypt framherjann Emanuel Villa frá UAG Tecos í Mexíkó og fengið varnarmanninn Danny Mills á láni frá Manchester City.
Villa sem er 25 ára hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Derby en hann kostar félagið tvær milljónir punda.
,,Þetta eru mjög spennandi kaup hjá okkur. Ég tel að Emanuel sé framherji í hæsta gæðaflokki," sagði Jewell við heimasíðu Derby.
,,Hann er leikmaður sem ég hef vitað af í langan tíma og ég hef haft mikinn áhuga á að fá hingað. Hann er fljótur, góður í loftinu, sterku og hefur skorað mikið af mörkum."
Mills, sem er þrítugur hægri bakvörður, hefur verið í láni hjá Charlton á þessari leiktíð en hann hefur ekki leikið með Manchester City síðan í ágúst 2006.
,,Hann hjálpar okkur baka til. Hann er reyndur leikmaður og ég er mjög ánægður með að hafa fengið hann," sagði Jewell við BBC Radio Derby.
Derby mætir Sheffield Wednesday í enska bikarnum á sunnudaginn og þar verður Villa kynntur fyrir stuðningsmönnum liðsins.
Mills gæti hins vegar leikið þar sinn fyrsta leik fyrir Derby ef að félagaskiptin ganga í gegn í tæka tíð.
Derby er sem stendur í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og nokkuð öruggt er að Jewell muni fá fleiri nýja leikmenn til liðsins í mánuðinum.