Fotbolti.net
04.01.08 - 21:41
Hafliði Breiðfjörð

Andreas Hinkel til Celtic (Staðfest)

Andereas Hinkel.

Andereas Hinkel.

Canon

Mynd: Getty Images

Glasgow Celtic hafa gengið frá kaupum á Andreas Hinkel frá spænska félaginu Sevilla en kaupverðið er um 1,9 milljón punda. Hinkel er 25 ára gamall þýsku hægri bakvörður. Hann skrifaði undir samning við skosku meistarana til ársins 2011.
,,Ég er hæstánægður með að semja við knattspyrnufélagið Celtic og ég hlakka mikið til að hitta nýju liðsfélagana," sagði Hinkel.

,,Ég mun gera mitt besta og leggja eins hart að mér og ég get til að leggja mitt af mörgum í að félagið nái eins miklum árangri og mögulegt er."

Hinkel sem er sókndjarfur bakvörður kom til Sevilla frá Stuttgart í júní 2006. Hann hafði óskað eftir því að yfirgefa spænska félagið og hafði einnig rætt við Wolfsburg og Borussia Dortmund.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.