Fotbolti.net
04.01.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Marco Borriello til Juventus á láni (Staðfest)

Borriello (hér gegn Juventus) er kominn til Juventus.

Borriello (hér gegn Juventus) er kominn til Juventus.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið Juventus hefur fengið Marco Borriello á láni frá AS Roma út tímabilið með möguleika á að kaupa hann alfarið næsta sumar.
Borriello, sem er 29 ára gamall ítalskur framherji hefur einungis leikið 7 leiki með Roma á þessu tímabili og ekki tekist að skora, en hann skoraði 17 mörk í öllum keppnum fyrir félagið á síðasta tímabili.

Hann hefur nú skrifað undir lánssamning hjá Juventus sem gildir út tímabilið, en þá hefur félagið einnig möguleika á að kaupa hann fyrir 7,5 milljónir evra eftir tímabilið. Það er því nóg úr framherjum að velja hjá Juventus en fyrir hjá félaginu eru þeir Fabio Quagliarella, Luca Toni, Alessandro Del Piero, Alessandro Matri, Amauri, Mirko Vucinic og Vincenzo Iaquinta.

Það má þó búast við því að Amauri gangi til liðs við Fiorentina eða Genoa á næstu dögum og þá er Iaquinta einnig á förum frá félaginu.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.