04.01.12 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Marco Reus til Dortmund næsta sumar (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Þýska félagið Borussia Dortmund hefur tryggt sér þjónustu sókndjarfa miðjumannsins Marco Reus sem kemur til félagsins næsta sumar.
Þessi 22 ára leikmaður var einnig orðaður við FC Bayern en hann spilar með Moenchengladbach.
Þessi 22 ára leikmaður var einnig orðaður við FC Bayern en hann spilar með Moenchengladbach.
Reus hefur svo sannarlega verið heitur á tímabilinu og skorað 10 mörk í 15 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni.
Spennandi verður að sjá hvernig hann stendur sig í gula búningnum en flestir sparkspekingar telja að þarna hafi Dortmund gert kjarakaup.
Spennandi verður að sjá hvernig hann stendur sig í gula búningnum en flestir sparkspekingar telja að þarna hafi Dortmund gert kjarakaup.
