Fotbolti.net
04.02.09 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Robbie Fowler til Fury (Staðfest)

Robbie Fowler til Fury (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Robbie Fowler hefur gert tveggja ára samning við ástralska félagið Nort Queensland Fury.
Fowler, sem er 33 ára, samdi við Blackburn í byrjun tímabilsins en yfirgaf félagið síðan í desember.

Á síðustu leiktíð var Fowler á mála hjá Cardiff en hann hefur einnig leikið með Liverpool, Manchester City og Leeds United á ferli sínum.

Fowler mun núna ganga til liðs við Fury en hann hefur æfingar með liðinu í júlí næstkomandi.

Á sínum tíma lék Fowler 26 landsleiki fyrir Englendinga en hann skoraði einnig 132 mörk með Liverpool á þeim tíma sem hann lék með liðinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.