04.02.09 - 11:08
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Viðar Mete í Val (Staðfest)

Guðmundur í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Guðmundur í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Miðvörðurinn sterki Guðmundur Viðar Mete er genginn í raðir Vals en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Guðmundur gerði samning við félagið út næsta tímabil en hann kemur frá Keflavík þar sem hann hefur verið undanfarin ár.
Guðmundur Viðar Mete er 28 ára gamall miðvörður. Hann gekk til liðs við Keflavík í júlí árið 2005 eftir að hafa leikið allan sinn feril í Svíþjóð. Hann hefur leikið 54 leiki með Keflavík í deild og bikar síðan þá.
Guðmundur missti nokkuð mikið úr vegna meiðsla hjá Keflavík í sumar og spilaði því aðeins 11 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni.
Hjá Val mun hann fá mikla samkeppni því fyrir hjá félaginu var Atli Sveinn Þórarinsson í miðvarðarstöðunni og þeir hafa einnig fengið Reyni Leósson úr Fram og Kristján Hauksson til baka úr láni frá Fjölni.
Hann verður áttundi leikmaðurinn sem Valur fær til liðs við sig frá síðustu leiktíð. Áður höfðu komið Haraldur Björnsson frá Hearts, Ian Jeffs frá Fylki, Ólafur Páll Snorrason frá Fjölni, Pétur Georg Markan frá Fjölni, Reynir Leósson frá Fram, Viktor Unnar Illugason frá Reading og Kristján Hauksson til baka úr láni frá Fjölni.
Rætt verður við Guðmund Viðar hér á Fótbolta.net síðar í dag.