04.02.09 - 16:20
Arnar Daði Arnarsson
Sigríður Björk Þorláksdóttir í Hauka (Staðfest)
Sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka í vetur

Sigríður Björk mun leika í rauðu í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson

Í síðustu viku skrifaði framherjinn Sigríður Björk Þorláksdóttir undir eins árs samning við 1.deildarlið Hauka. Sigríður kemur til Hauka frá Hetti en þar skoraði hún fimm mörk í jafn mörgum leikjum í 1.deildinni í sumar.
Sigríður er sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka í vetur en Salih Heimir Porca hefur verið duglegur að safna saman liði í Hafnarfirðinum en hann ætlar sér upp með liðið á sínu fyrsta ári.
„Hún getur spilað margar stöður á vellinum og það er mikill kraftur og reynsla í henni en ég mun líklega nota hana sem framherja hjá okkur þó að hún geti einnig spilað aðrar stöður ,“ sagði Salih Heimir Porca í viðtali við heimasíðu Hauka.
„Ég þekki ágætlega til hennar og ég er gríðarlega ánægður með að hafa fengið hana. Hún var nokkurnvegin hætt í fótbolta fyrir þremur árum en þá fékk ég hana til mín til Hauka,“ en eftir það hefur hún leikið með Breiðablik í Landsbankadeildinni og með Hetti eins og fyrr segir í fréttinni.
Það er greinilegt að Sigríður Björk verður ekki síðasti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka áður en tímabilið hefst í sumar því það eru fleiri leikmenn á leiðinni til Hauka að sögn Porca „Það eru fleiri leikmenn í sigtinu sem eiga einungis eftir að fá félagsskiptin í gegn. Hver sagði svo að það væri erfitt að fá leikmenn í Hauka?,“ sagði Salih Heimir að lokum við heimasíðu Hauka.
Það er því ljóst að Haukaliðið verður ógnarsterkt í sumar ef rétt verður haldið á spilunum í Hafnarfirðinum.

Heimild: Haukar.is