04.02.09 - 16:23
Hörður Snævar Jónsson
Gunnleifur Gunnleifsson lánaður til Vaduz (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Gunnleifur Gunnleifsson, landsliðsmarkvörður Íslands í knattspyrnu, hefur verið lánaður frá HK til Vaduz í Liechtenstein, sem leikur í svissnesku úrvalsdeildinni, út þetta keppnistímabil. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Gunnleifur sagði í samtali við Mbl að hann færi út á morgun en möguleiki er á að hann fari beint í lið Vaduz þegar það mætir Aarau í úrvalsdeildinni á laugardag en þá hefst keppni í Sviss á nýjan leik eftir vetrarfríið.
Samningur Gunnleifs er til 30.maí en hann segir á vef Morgunblaðsins að það fari eftir því hvernig hann stendur sig hvort hann framlengi við liðið.
Gunnleifur er þriðji Íslendingurinn sem gengur í raðir Vaduz en liðið hafði áður fengið Stefán Þórðarson og Guðmund Steinarsson.