04.02.09 - 17:21
Magnús Már Einarsson
Stephen Kelly til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur fengið varnarmanninn Stephen Kelly á láni frá Birmingham úit þetta tímabil.
Félögin samþykktu lánssamninginn áður en félagaskiptaglugginn lokaði síðastliðinn mánudag.
Kelly, sem er 25 ára Íri, gat hins vegar ekki komist til Stoke til að skrifa undir samninginn þar sem mikill snjór gerði samgöngur erfiðar á Englandi. Í dag var hins gengið endanlega frá samningnum.
Á síðustu leiktíð lék Kelly alla leiki Birmingham í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur átt við meiðsli að stríða í vetur og því einungis leikið sjö leiki.
Kelly gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Stoke á laugardag þegar að liðið mætir Sunderland á Stadium of Light.

Heimild: BBC