Bóas Heimisson hefur skrifað undir samning við Reyni Sandgerði en hann kemur til félagsins frá KFG.
Hann er fæddur árið 2004 en hann er uppalinn hjá Haukum og lék í 2. flokki Vals áður en hann fór til KFK og hóf meistaraflokksferilinn. Hann fór frá KFK í KFG fyrir síðasta tímabil.
Hann er fæddur árið 2004 en hann er uppalinn hjá Haukum og lék í 2. flokki Vals áður en hann fór til KFK og hóf meistaraflokksferilinn. Hann fór frá KFK í KFG fyrir síðasta tímabil.
Reynir Sandgerði hefur einnig tilkynnt að Konstantin Sadenko, eða Konni eins og hann er kallaður, hefur framlengt samning sinn til tveggja ára.
Konni er fæddur árið 2007 og er uppalinn í Reyni. Hann kom við sögu í fjórum leikjum þegar Reynir hafnaði í 5. sæti í 3. deild síðasta sumar.
Athugasemdir


