Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frá KA til Svíþjóðar (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
William Tönning hefur yfirgefið KA eftir misheppnaða dvöl en hann hefur skrifað undir samning hjá Östersund í Svíþjóð.

Östersund er í næst efstu deild en liðið var í harðri fallbaráttu á síðustu leiktíð. Tönning kemur inn í hópinn fyrir leiki í sænska bikarnum sem hefst 21. febrúar gegn Kolbeini Þórðarsyni og félögum í Gautaborg.

Hann heillaði menn meðan hann æfði með Östersund og fékk samning út bikarkeppnina.

Tönning er fæddur árið 1999 en hann gekk til liðs við KA frá Ängelholms í sænsku C-deildinni. Hann kom við sögu í tíu leikjum í deild og bikar síðasta sumar.



Athugasemdir
banner
banner