Danski miðjumaðurinn Jonas Gemmer er genginn í raðir FC Helsingör í Danmörku. Hann var fenginn til ÍA síðasta sumar en spilaði einungis þrjá leiki fyrir félagið.
Gemmer er þrítugur og á að baki rúmlega 110 leiki í dönsku úrvalsdeildinni. Á sínum tíma lék hann 28 leiki fyrir yngri landslið Danmerkur.
Hann náði ekki að sýna sitt rétta andlit með ÍA og yfirgf félagið áður en tímabilið kláraðist.

Helsingör situr í neðsta sæti deildairnnar, átta stigum frá öruggu sæti þegar deildin er hálfnuð. Íslendingaliðið AB er á toppi deildarinnar.
Athugasemdir