04.03.05 - 16:21
Magnús Már Einarsson
Atli og Sigmundur lánaðir til Fjölnis (Staðfest)

Atli Guðnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Guðnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lið Fjölnis úr fyrstu deild hefur verið duglegt að styrkja sig að undanförnu og í dag fékk liðið Sigmund Pétur Ástþórsson og Atla Guðnason framherja frá FH á láni.
Atli sem er tvítugur lék einn leik með FH í efstu deild síðastliðið sumar. Um mitt mót var hann lánaður til HK þar sem hann gerði þrjú mörk í átta leikjum í fyrstu deild.
Sigmundur sem er 21 árs lék líkt og Atli einn leik með FH í efstu deild síðastliðið sumar en ljóst er að þeir munu styrkja lið Fjölnis.
Öll félagaskipti hér á landi
Sigmundur sem er 21 árs lék líkt og Atli einn leik með FH í efstu deild síðastliðið sumar en ljóst er að þeir munu styrkja lið Fjölnis.
Öll félagaskipti hér á landi
