04.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ulises de La Cruz til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur gert eins mánaðar samning við varnarmanninn Ulises de la Cruz.
Þessi 35 ára gamli Ekvadori var látinn fara frá Reading í sumar og hefur verið án félags síðan þá.
Hann hefur æft með Birmingham undanfarnar vikur og Alex McLeish stjóri félagsins hefur nú ákveðið að semja við hann í einn mánuð.
Birmingham á í harðri baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina að nýu en félagið vonast til að de la Cruz verði orðinn löglegur fyrir leik liðsins gegn Bristol í kvöld.
De la Cruz er einn af mörgum leikmönnum sem hafa komið til Birmingham að undanförnu en tveir aðrir reyndir varnarmenn, Stephen Carr og Djimi Traore, hafa einnig komið sem og lánsmennirnir Scott Sinclair, Hameur Bouazza, Lee Bowyer og Carlos Costly.

Heimild: BBC