Rúrik Gunnarsson er genginn í raðir Leiknis í Breiðholti og mun spila með liðinu í sumar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Rúrik er miðjumaður sem kemur til Leiknis frá HK en hann spilaði að mestu leyti með Grindavík á láni í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Rúrik er uppalinn í Breiðabliki en fór ungur að árum í KR þar sem hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann hefur einnig leikið með Aftureldingu og KV á sínum ferli.
Faðir hans er Gunnar Einarsson sem lék með og þjálfaði hjá Leikni.
„Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í Breiðholtið!" segir í tilkynningu Leiknismanna.
Athugasemdir



