04.04.07 - 14:37
Magnús Már Einarsson
Andri Valur á mánaðarláni til Fjarðabyggðar (Staðfest)

Mynd: Úr einkasafni

Mynd: Úr einkasafni
Fjarðabyggð úr fyrstu deild hefur fengið sóknarmanninn Andra Val Ívarsson að láni frá Val í einn mánuð en eins og við greindum frá á dögunum mun hann ekki leika með Hlíðarendafélaginu í sumar.
Andri verður hjá Fjarðabyggð í mánuð til að byrja með áður en að ákvörðun verður tekinn með framhaldið en hann hefur þegar fengið leikheimild og er hann því löglegur gegn Leikni Fáskrúðsfirði í Lengjubikarnum í kvöld.
Þess má til gamans geta að fyrir eru þrír leikmenn hjá Fjarðabyggð sem heita Andri, þeir Andri Hjörvar Albertsson, Andri Þór Magnússon og Andri Bergmann Þórhallsson.
Þá er möguleiki á að Fjarðabyggð fái miðju og sóknarmanninn Inga Þór Þorsteinsson að láni frá HK en möguleiki er á að hann verði til skoðunar hjá fyrstudeildarliðinu í æfingaleik um helgina.