Herdís Halla Guðbjartsdóttir mun koma til með að byrja tímabilið sem aðalmarkvörður ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks.
Herdís er fædd árið 2007 og spilaði hún tvo leiki með liðinu á síðasta ári. Blikar sömdu við bandaríska markvörðinn Taylor Kane nýverið en hún kemur frá Minnesota Aurora í heimalandinu og mun koma til með að veita Herdísi samkeppni.
Á síðasta tímabili notuðu Blikar fjóra markmenn. Katherine Devine lék flesta leiki í markinu og þá spilaði Telma Ívarsdóttir sjö leiki áður en hún hélt út í atvinnumennsku. Kyla Elizabeth Burns lék einn leik en yfirgaf Blika um áramótin og Herdís lék tvo leiki.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 FH
„Herdís er okkar aðalmarkvörður og Taylor vissi að hún kæmi á þeim forsendum að við værum með markvörð. Hún er að koma til okkar til að berjast um sæti og veita Herdísi samkeppni.
Hún þarf að vera á tánum eins og með alla aðra leikmenn. Það er samkeppni og við viljum auka samkeppnina og hafa meiri breidd,“ sagði Ian Jeffs í samtali við Vísi.