Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   lau 04. apríl 2026 18:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
Siggi Höskulds svekktur eftir leik
Siggi Höskulds svekktur eftir leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður ekki vel, ömurlegt að tapa, ömurlegt að tapa á heimavelli, ömurlegt að fá á sig fjögur mörk. Mér fannst við eiginlega bara gefa þeim þrjú af þeim með klaufagangi - algjör óþarfi. Þegar þeir komast inn í leikinn og jafna þá fannst mér við með frábær tök á leiknum og betri aðilinn á þeim tímapunkti."

„Allir þjálfarar segja alltaf að mörkin sem skoruð eru á þá séu ódýr og þau sem liðið skorar séu frábær, en þetta var alveg klaufagangur og lélegt af okkur,"
sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir tap gegn FH í Mjólkurbikarnum i dag.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  4 FH

„Mér fannst við koma mjög ferskir inn í seinni hálfleikinn, með öll tök á leiknum og stefndi í góðan hálfleik. Við gefum þeim 3-1 markið og líka fjórða markið. Algjör óþarfi að fá á sig fjögur mörk því mér fannst við á heildina gera nokkuð vel. Ég er bjartsýnn með spilamennskuna og heildarbraginn á liðinu. Það er gjörsamlega óþolandi að fá sig fjögur mörk og finnast allavega þrjú af þeim vera gjöf."

„Maður hefur áhyggjur af því þegar það er verið að skora fjögur mörk á þig, en ég held að við verðum ekki í klaufagangi í hverjum einasta leik. Vonandi var þetta 'one off' í svona kjaftæði, við erum ekki vanir þessu rugli. Ég hef ekkert áhyggjur af því, en óþolandi að fá á sig fjögur á heimavelli og við getum ekki boðið upp á það í efstu deild á Íslandi."

„Í fyrsta markinu erum við of seinir inn í hjartað á miðjunni, þar eigum við að vinna boltann. Í öðru markinu spörkum við boltanum í svæði sem við vildum fara í, förum ekki upp í skallaboltann; frír skalli fram og bæng, 1-2. Aron á að gera betur í þriðja markinu og í fjórða markinu töpum við boltanum beint fyrir framan teiginn okkar í einhverjum fíflagangi. Þeir fengu ekkert brjálæðislega mikið af færum fyrir utan þetta. Ég held þetta sé 'one off'."


Fyrsta og fjórða markið kom eftir sendingar frá miðjumönnum FH yfir miðvarðapar Þórs. Þarf að skoða það?

„Við munum skoða þetta rosalega vel, ég var ekkert sáttur við þá að hafa ekki fallið betur til baka. En hins vegar áttum við að vera búnir að koma í veg fyrir að þessir boltar komi ekki hratt á bakvið vörnina."

Er að einhverju leyti allt í lagi að fá smá raunveruleikatékk fyrir fyrstu umferðina í Bestu deildinni?

„Ég fer alveg brattur út úr þessum leik, það er alveg klárt. Ég nenni samt ekki að vera segja að það sé flott að fá á sig fjögur mörk, það er aldrei flott, það er fokking óþolandi. Ég held að það verði allir mjög pirraðir með þessi atriði, en hins vegar verðum við að horfa á björtu hliðina því mér fannst við á heildina spila nokkuð vel. Mér fannst við bara góðir að mörgu leyti í leiknum og með yfirhöndina lengi vel. Það er gott, við mætum jákvæðir."

„Nei, það er ekkert stress fyrir fyrstu umferðinni. Mér finnst bara geðveikt að þetta ?e að fara byrja. Mér finnst við á góðum stað fyrir utan svona 2-4 sem eru að koma til baka eftir smá meiðsli. Ég held að heildarstandið á liðinu sé mjög gott."

„Það var á kafla í seinni hálfleik þar sem mér fannst samt miklu meira hjarta og greddu til að koma og berjast til baka. Mér fannst við litlir þar. En ég held við séum mjög tilbúnir í mótið,"
sagði Siggi.
Slapp
banner
banner