04.05.06 - 13:49
Magnús Már Einarsson
Selfoss fær Schwartz (Staðfest)


Mynd: http://www.naesbyboldklub.dk


Mynd: http://www.naesbyboldklub.dk
Selfyssingar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir aðra deildina í sumar því þeir hafa fengið 28 ára danskan sóknarmann að nafni René Schwartz sem á reynslu að baki í úrvalsdeildinni þar í landi.
Schwartz þessi er sterkur leikmaður sem heldur boltanum vel en hann á að baki tvo landsleiki með U-16 ára landsliði Dana auk þess sem hann hefur leikið með Odense í efstu deild þar í landi.
Hann hefur leikið með OB, B 1913, B 1909, AC Horsens og Næsby IF í Danmörku en hann kemur frá síðastnefnda liðinu sem hann hefur skorað níu mörk fyrir í tuttugu leikjum í annarri deildinni í vetur.
Hann hefur leikið með OB, B 1913, B 1909, AC Horsens og Næsby IF í Danmörku en hann kemur frá síðastnefnda liðinu sem hann hefur skorað níu mörk fyrir í tuttugu leikjum í annarri deildinni í vetur.
