Fotbolti.net
04.05.07 - 16:33
Magnús Már Einarsson

Recrativo kaupir Sinama-Pongolle frá Liverpool (Staðfest)

Recrativo kaupir Sinama-Pongolle frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Recreativo Huelva hefur keypt franska framherjann Florent Sinama-Pongolle frá Liverpool en hann hefur verið í láni hjá spænska félaginu í vetur.
Recreativo sem er í sjöunda sæti spænsku deildarinnar og í baráttu um Evrópusæti hafði möguleika á að kaupa Pongolle myndi hann standa sig vel á lánstímanum og nú hefur félagið nýtt sér þá klásúlu.

Francisco Mendoza forseti Recreativo greindi frá þessu í dag og sagði kaupverðið vera fjórar milljónir evra sem er metfé hjá félaginu.

Pongolle sem er 22 ára er markahæsti maður Recreativo á tímabilinu með tíu mörk en hann hefur gert samning við félagið til ársins 2011.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.