Fotbolti.net
04.05.11 - 10:24
Magnús Már Einarsson

Jesper Jensen í Stjörnuna (Staðfest)

Baldvin frá keppni næstu vikurnar

Úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur í fyrradag.

Úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur í fyrradag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson

Stjarnan hefur fengið miðjumanninn Jesper Jensen á láni frá Vejle en samningurinn gildir þar til í lok júní.

Jensen er 22 ára gamall en hann á að baki 31 leik með aðalliði Vejle og 37 leiki með SønderjyskE.
,,Þetta ku vera sterkur miðjumaður og hann hefur reynslu úr úrvalsdeild,\" sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar við Fótbolta.net.

Nikolaj Hagelskjær, annar leikmaður Vejle, kom til Stjörnunnar á láni í lok síðasta mánaðar og hann lék með liðinu í 4-2 tapinu gegn Keflavík í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.

Í þeim lék meiddist miðjumaðurinn Baldvin Sturluson en hann verður frá næstu vikurnar og því hefur Stjarnan ákveðið að fá Jensen í hans stað.

Jensen ætti að fá leikheimild í lok vikunnar og verða klár í slaginn þegar Stjarnan fær Víking R. í heimsókn á laugardaginn.

Stjarnan gæti fengið frekari liðsstyrk á næstunni en félagið er einnig í leit að framherja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.