Fotbolti.net
04.06.07 - 14:54
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Claudio Ranieri ráðinn þjálfari Juventus (Staðfest)

Claudio Ranieri ráðinn þjálfari Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Claudio Ranieri fyrrum stjóri Chelsea hefur verið ráðinn þjálfari Juventus. Þesis 56 ára gamli þjálfari hætti með Parma í síðustu viku og hafði hann verið orðaður við stjórastöðu Manchester City.
Ranieri tók við Parma í febrúar síðastliðnum og stýrði liðinu í tólfta sæti í Serie A og forðaði því frá falli.

Hann tekur við Juventus af Didier Deschamps sem að hætti sem þjálfari liðsins eftir að hafa stýrt því aftur upp í Serie A.

Deschamps sem vann Meistaradeildina sem leikmaður með Juventus árið 1996 stýrði liðinu til sigurs í Serie B á nýliðinni leiktíð. Juventus var dæmt niður í Serie B og þurfti að byrja með fimmtán stig í mínus þar vegna hneykslismálsins á Ítalíu síðastliðið sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.