04.06.07 - 18:18
Magnús Már Einarsson
Antoine Sibierski til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wigan hefur fengið Antoine Sibiserki en þessi 32 ára gamli Frakki hefur gert tveggja ára samning við félagið eftir að hafa hafnað nýjum eins árs samningi við Newcastle.
Sibierski er talinn hafa hafnað nokkrum félögum, þar á meðal Bolton Wanderers.
,,Ég er ánægður með að framtíð mín er kominn á hreint. Stjórinn hreif mig mjög mikið og þetta er klárlega mjög metnaðargjarnt félag. Ég get ekki beðið eftir að byrja," sagði Sibierski við heimasíðu Wigan.
Hann er annar leikmaðurinn sem Wigan fær frá Newcastle í dag því að í morgun samdi félagið við varnarmanninn Titus Bramble.

Heimild: Sky