04.06.08 - 13:07
Davíð Örn Atlason
Mark Hughes tekinn við Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mark Hughes hefur verið ráðinn eftirmaður Sven Goran Eriksson sem knattspyrnustjóri Manchester City.
Eriksson tók við landsliði Mexíkó í gær og Hughes yfirgefur Blackburn fyrir starfið.
Hughes var einnig orðaður við stjórastöðuna hjá Chelsea eftir að Avram Grant var rekinn frá félaginu, en ekkert varð úr því.
Garry Cook, nýráðinn stjórnarformaður City skrifaði undir samninga með Hughes í dag og segir að hann sé rétti maðurinn í starfið.
,,Ég er hæstánægður með komu Mark (Hughes) hingað. Að okkar mati er hann einn besti ungi stjórinn í boltanum í dag og var okkar fyrsta val," sagði Cook.

Heimild: Sky