Fotbolti.net
04.07.06 - 21:21
Hörður Snævar Jónsson

Aron Einar til AZ (Staðfest)

Aron Einar til AZ (Staðfest)
Canon

Mynd: Úr einkasafni

Hinn ungi og efnilegi Aron Einar Gunnarsson hefur gengið til liðs við AZ Alkmaar frá Þór Akureyri en þetta kom fram á NFS í dag. Samningur Arons er til tveggja ára en þrátt fyrir að vera aðeins sautján ára hefur Aron verið einn af betri mönnum Þórs í fyrstu deildinni á þessu tímabili.
Aron var í U-17 ára landsliði Íslands í fyrra sem fór á Norðurlanda og Evrópumót og þá lék hann einnig með liði Þórs í fyrstu deildinni. Hann hefur nokkrum sinnum farið til reynslu erlendis og hreif menn hjá AZ þegar hann var til reynslu hjá liðinu í apríl.

Með liðinu leika fyrir tveir Íslendingar, þeir Grétar Rafn Steinsson og Jóhannes Karl Guðjónnsson. Ásamt Alkmaar, höfðu hollensku liðin PSV Eindhoven og NEC Njimingen áhuga á Aroni ásamt Ipswich, Örgryte, Esbjerg og Bröndby.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.