04.07.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Nýliðar WBA kaupa varnarmann frá Heerenveen (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur fest kaupa á hollenska varnarmanninum Gianni Zuiverloon en hann kemur frá Heerenveen á 3,2 milljónir punda og mun styrkja liðið sem vann sér í vor sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur gert þriggja ára samning við WBA með möguleika á framlengingu.
Zuiverloon hefur leikið 17 landsleiki með U21 árs landsliði Hollendinga og hann er í hópnum sem fer á Ólympíuleikana í ágúst.
,,Við höfum mjög hæfileikaríkan, ungan fótboltamann sem er ákveðinn í að sanna gæði sín á hæsta stigi,\" sagði Tony Mowbray stjóri WBA.
,,Hann hefur góða varnareiginleika, er góður íþróttamaður, er góður á bolta og vill bæta sig,\" sagði Mowbray sem vonast til að styrkja hópinn meira áður en enska úrvalsdeildin hefst.

Heimild: BBC