Fotbolti.net
04.07.09 - 17:08
Magnús Már Einarsson

Úlfarnir fá Ronald Zubar frá Marseille (Staðfest)

Wolves hefur fengið liðsstyrk.

Wolves hefur fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt varnarmanninn Ronald Zubar frá Marseille en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Zubar, sem er 23 ára, hefur gert fjögurra ára samning við enska félagið.

Hann mun nú halda til Ástralíu þar sem hann mun hitta nýju liðsfélaga sína í Wolves.

Liðið mun meðal annars mæta Robbie Fowler og félögum í North Queensland Fury í æfingaferðinni í Ástralíu.

Mick McCarthy stjóri Wolves hefur verið duglegur að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en auk Zubar hafa Greg Halford, Kevin Doyle, Andrew Surman, Marcus Hahnemann og Nenad Milijas komið til félagsins í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.