Fotbolti.net
04.07.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Kevin Keen ráðinn þjálfari hjá Liverpool (Staðfest)

Kevin Keen á bekknum hjá West Ham 22. maí síðastliðinn.

Kevin Keen á bekknum hjá West Ham 22. maí síðastliðinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur ráðið Kevin Keen fyrrverandi knattspyrnustjóra West Ham sem nýjan þjálfara aðalliðsins. Hann tekur við starfinu af Sammy Lee sem hætti í síðustu viku.
Keen þekkir vel til Steve Clarke aðstoðarstjóra Liverpool sem kom til Liverpool í janúar en sá hafði verði aðstoðarmaður Gianfranco Zola hjá West Ham.

Kevin Keen sem er 44 ára gamall skrifaði undir þriggja ára samning við Liverpool og hefur störf á mánudag þegar undirbúningstímabilið hefst hjá Liverpool.

Hann hafði þrisvar tekið við knattspyrnustjórn West Ham tímabundið, síðast eftir að Avram Grant var rekinn í maí. Hann hafði áhuga á að taka alveg við liðinu en félagið réði Avram Grant.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.