04.07.11 - 16:03
Magnús Már Einarsson
Kolbeinn Sigþórsson til Ajax (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Ajax frá Amsterdam hefur keypt framherjann Kolbein Sigþórsson frá AZ Alkmaar.
Kolbeinn stóðst læknisskoðun hjá Ajax í dag og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samning en þetta kemur fram á mbl.is.

,,Ég tel mig vera að taka rétta skrefið með því að fara til Ajax og það er frábært að fá tækifæri til að spila með þessu góða liði sem leggur svo ríka áherslu á sóknarleikinn,\" sagði Kolbeinn við Morgunblaðið.
Ajax hefur lengi haft áhuga á Kolbeini en í síðustu viku leit út fyrir að ekkert yrði af því að hann færi til félagsins.
Ajax ákvað síðan að hækka tilboð sitt fyrir helgina og í kjölfarið gengur félagaskiptin í gegn í dag.
Kolbeinn mun núna hefja æfingar með Ajax en liðið mætir De Graafschap í fyrstu umferð hollensku deildarinnar sunnudaginn 7. ágúst næstkomandi.

Heimild: Morgunblaðið