04.07.11 - 16:46
Magnús Már Einarsson
Gael Clichy til Manchester City (Staðfest)

Gael Clichy.

Mynd: Getty Images

Gael Clichy.

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur keypt vinstri bakvörðinn Gael Clichy frá Arsenal en talið er að kaupverðið sé í kringum sjö milljónir punda.
Þessi 25 ára Frakki fór í læknisskoðun hjá Manchester City í dag og hann hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við félagið eftir að hafa einnig verið orðaður við Liverpool í sumar.
Clichy hefur verið hjá Arsenal síðan árið 2003 en hann kom til félagsins frá Cannes í Frakklandi.
Clichy hefur átt fast sæti í liði Arsenal undanfarin ár en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Hann hafði lítinn áhuga á að gera nýjan samning við Arsenal og því ákvað félagið að selja hann núna í stað þess að eiga á hættu að missa hann frítt næsta sumar.
Líklegt er að Clichy muni berjast við Aleksandar Kolarov um stöðu vinstri bakvarðar hjá Manchester City en Wayne Bridge er væntanlega á förum eftir að hafa verið á láni hjá West Ham síðari hlutann á síðasta tímabili.

Heimild: Sky