Fotbolti.net
04.08.06 - 08:50
Hafliði Breiðfjörð

Valencia til Wigan (Staðfest)

Luis Antonio Valencia   í baráttu við Joe Cole leikmann Chelsea á HM í sumar.

Luis Antonio Valencia í baráttu við Joe Cole leikmann Chelsea á HM í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hafa gengið frá eins árs lánssamningi á Luis Antonio Valencia miðvallarleikmanni Villarreal. Ekvadorinn sem er 21 árs gamall getur spilað á miðjunni eða hægri kanti. Hann býður nú eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi.
,,Antonio er eitthvað nýtt fyrir Wigan," sagði Paul Jewell stjóri Wigan. ,,Hann hefur mikla hæfileika og blandar þeim saman við svakalegum hraða og leggur mikið á sig."

Valencia á að baki 19 landsleiki fyrir Ekvador og var í liðinu í úrslitakeppni HM í sumar. Hann mætti þar Englendingum í 1-0 tapleik. Jewell hélt áfram.+

,,Hann spilaði í Evrópu í eina leiktíð og ég er viss um að hann hafi eitthvað fram að færa í úrvalsdeildinni."

Valencia gekk í raðir Villarreal í fyrra en hafði áður verið á láni hjá Recreativo Huelva.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.