Fotbolti.net
04.08.06 - 19:10
Hafliði Breiðfjörð

Jaidi til Birmingham (Staðfest)

Radhi Jaidi  í leik með Bolton á síðustu leiktíð.

Radhi Jaidi í leik með Bolton á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Radhi Jaidi er genginn í raðir Birmingham frá Bolton en samningurinn er allt að tveggja milljón punda virði og frá honum var gengið eftir að Jaidi fékk atvinnuleyfi. Jaidi sem er þrítugur gerir þriggja ára samning við Birmingham.
Hjá Birmingham hittir Jaidi fyrir Bruno N´Gotty fyrrum liðsfélaga sinn hjá Bolton. Jaidi lék síðast á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi þar sem hann skoraði fyrir Túnis í 2-2 jafntefli gegn Saudi Arabíu.

Steve Bruce ætlar ekki að hafa Jaidi í fyrsta leik tímabilsins um helgina og leyfir honum að hvíla lengur en öðrum leikmönnum vegna Heimsmeistaramótsins. Hann er ekki heldur viss hvort hann noti hann í annarri umferð gegn Sunderland fjórum dögum síðar.

,,Það væri rangt af mér að hafa Jaidi með jafnvel þó hann sé kominn með atvinnuleyfið í gegn því að í gær var fyrsti dagur hans á æfingum síðan hann spilaði á Heimsmeistramótinu," sagði Bruce. ,,Hann gæti mögulega verið með gegn Sunderland en við skoðum líkamlegt ástand hans."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.