04.08.07 - 15:35
Hafliði Breiðfjörð
Reading fær til sín miðjumann frá Nantes (Staðfest)

Emerse Fae í leik með Fílabeinsströndinni í febrúar 2006.

Mynd: Getty Images

Reading hafa gengnið frá kaupum á Emerse Fae frá franska liðinu Nantes en kaupverðið er talið vera 2,5 milljónir punda. Fae er landsliðsmaður frá Fílabeinsstörndinni. Hann er 23 ára gamall miðjumaður sem gerir þriggja ára samning með möguleika á því fjórða og hefur þegar fengið úthlutað treyjunúmerinu 20.
,,Reading hafa fylgst lengi með mér. Ég var áhugasamur um leið og ég heyrði að þeir vildu mig," sagði Fae.
Nick Hammond yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu sagði: ,,Við höfum verið á eftir Emerse í nokkuð langan tíma."
Kaupverðið á Fae gæti hækkað eftir hversu mikið hann spilar með Reading. Hann verður önnur kaup félagsins í sumar á eftir Kalifa Cisse sem kom frá Boavista.
,,Við teljum að samningurinn sem við höfum náð við Nantes sé mjög hagkvæmur, sérstaklega á þessu markaðssvæði. Hann elskar að fara fram og rekja boltann, og mun koma með eitthvað öðruvísi en hinir miðjumennirnir okkar í hópnum."
John Madjeski formaður félagsins var líka ánægður en hann sagði: ,,Þetta eru mjög mikilvæg kaup. Hann kemur til okkar á mjög spennandi tíma því við erum að undirbúa okkur undir aðra leiktíðina í úrvalsdeildinni, og við höfum trú á að hann muni sanna sig sem mjög góð kaup."
,,Við höfum verið einbeittir og valið vel á félagaskiptamarkaðnum í sumar og Emerse er leikmaður sem við höfum lengi haft áhuga á. Svo það er mjög gott að þolinmæði okkar hefur borið ávöxt."
Fae lék yfir 100 leiki fyrir Nantes og hann er líka spenntur yfir vistaskiptunum. ,,Ég hef beðið eftir þessari stundu lengi og núna þegar það er frágengið er ég mjög ánægður," sagði Fae. ,,Reading hafa lengi verið á eftir mér og ég hafði áhuga strax og ég heyrði að þeir vildu fá mig. Ég vil spila hérna og vinna leiki á þessum magnaða leikvangi, og ég er ánægður með að vinna með Steve Coppell, hann er góður knattspyrnustjóri"