Fotbolti.net
04.08.11 - 14:39
Magnús Már Einarsson

David Goodwillie til Blackburn (Staðfest)

David Goodwillie til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur keypt framherjann David Goodwillie frá Dundee United í Skotlandi.

Talið er að kaupverðið hljóði upp á tvær milljónir punda og 800 þúsund pund gætu bæst við það síðar meir.

Hinn 22 ára gamli Goodwillie skrifaði sjálfur undir fjögurra ára samning við Blackburn.
Rangers reyndi einnig að fá Goodwillie í sínar raðir en að lokum hafði Blackburn betur.

Goodwillie var á skotskónum með Dundee síðasta tímabil en hann afrekaði þá að leika sinn fyrsta A-landsleik fyrir Skotland. Áður hefur hann leikið fyrir öll yngri landslið þjóðarinnar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.