Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 04. ágúst 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Willian færist nær Arsenal
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja frá því í dag að líkurnar séu að aukast á því að Willian yfirgefi Chelsea og gangi til liðs við Arsenal.

Hinn 31 árs gamli Willian er samningslaus og skoðar nú stöðu sína.

Chelsea bauð Willian nýjan tveggja ára samning en Brasilíumaðurinn hafnaði honum þar sem hann vill fá þriggja ára samning.

Arsenal er tilbúið að bjóða Willian þriggja ára samning og hann færist nær því að skrifa undir hjá félaginu.

Líklegt þykir að Willian klári samninga á næstu dögum og ef ekkert óvænt kemur upp á þá mun hann ganga til liðs við Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner