04.09.07 - 14:44
Sindri Þór Þorgeirsson
Jay Jay Okocha til Hull (Staðfest)

Jay-Jay Okocha er kominn aftur í enska boltann

Mynd: Getty Images

Jay-Jay Okocha er kominn aftur í enska boltann

Mynd: Getty Images
Nígeríumaðurinn Jay-Jay Okocha gekk í dag til liðs við enska fyrstudeildarliðið Hull en hann kemur á frjálsri sölu. Þetta staðfesti Sky Sports News fréttastofan nú rétt í þessu.
Okocha sem er orðinn 34 ára er líklegast þekktur fyrir frammistöðu sína með nígeríska landsliðinu og Bolton Wanderers þar sem hann var fyririði og sýndi oft gífurlega skemmtilega takta á knattspyrnuvellinum.
Okocha ætti að kannast við knattspyrnustjóra Hull því að sá heitir Phil Brown og var aðstoðarþjálfari Sam Allardyce hjá Bolton á þeim tíma þegar Allardyce og Jay Jay Okocha voru hjá félaginu.
Okocha ætti að kannast við knattspyrnustjóra Hull því að sá heitir Phil Brown og var aðstoðarþjálfari Sam Allardyce hjá Bolton á þeim tíma þegar Allardyce og Jay Jay Okocha voru hjá félaginu.
Heimild: Sky Sports
