Fotbolti.net
04.09.09 - 10:40
Magnús Már Einarsson

Afonso Alves til Katar (Staðfest)

Afonso Alves til Katar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Afonso Alves, framherji Middlesbrough, hefur gengið til liðs við Al Sadd í Katar fyrir sex milljónir punda.
Þessi 28 ára gamli Brasilíumaður kom til Boro frá Heerenveen fyrir metfé í janúar árið 2008 en enska félagið borgaði þá tólf milljónir punda fyrir Alves.

Alves gekk vel á fyrsta tímabili sínu með Middlesbrough en á síðustu leiktíð skoraði hann einungis fjögur mörk þegar að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Í sumar lýsti Alves því yfir að hann vildi yfirgefa Middlesbrough en hann skrópaði meðal annars á æfingar hjá liðinu.

Alves er fjórði leikmaðurinn sem Boro missir í sumar en áður höfðu Stewart Downing, Tuncay Sanli og Robert Huth yfirgefið félagið.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.