Fotbolti.net
04.09.09 - 14:52
Magnús Már Einarsson

Fyrrum leikmaður Breiðabliks til Lyn (Staðfest)

Oliver Risser í leik með Blikum.

Oliver Risser í leik með Blikum.

Canon

Mynd: Blikar.is

Oliver Risser, fyrrum leikmaður Breiðabliks, hefur gengið til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Lyn.
Risser lék með Breiðablik sumarið 2006 en hann gekk á dögunum til liðs við Lyn á láni frá norska 2.deildarliðinu Manglerud Star.

Risser er fyrirliði namibíska landsliðsins en eftir að hafa yfirgefið Breiðablik lék hann um tíma í Þýskalandi áður en hann gekk í raðir Manglerud Star í mars síðastliðnum.

Með Lyn leikur Arnar Darri Pétursson en Indriði Sigurðsson og Theodór Elmar Bjarnason yfirgáfu félagið fyrir nokkrum vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.