04.09.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Juventus sendir Ziegler á láni til Fenerbache (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Reto Ziegler, vinstri bakvörður Juventus, hefur verið lánaður til Fenerbache í Tyrklandi fyrir 600 þúsund evrur.
Ziegler var fenginn frítt til Juventus í sumar frá Sampdoria sem féll úr Seríu A í vor. Hann hreif Antonio Conte, knattspyrnustjóra Juventus, greinilega ekki á æfingum liðsins og þess vegna hefur hann verið lánaður út til Tyrklands.

Ziegler, sem lék með Tottenham á Englandi áður en hann fór til Sampdoria, átti að vera lausnin á bakvarðavandamálum Juventus en er það greinilega ekki.
Paolo de Ceglie og Fabio Grosso eru vinstri bakverðir liðsins og eru báðir mjög góðir sóknarlega en hrikalega ósannfærandi varnarlega og stór partur af ástæðunni fyrir því að Juventus lenti aðeins í 7. sæti á síðasta tímabili.

Heimild: Sky Sports