04.09.11 - 07:03
Hafliði Breiðfjörð
Albert Riera til Galatasaray (Staðfest)

Riera er farinn til Galatasaray.

Mynd: Getty Images

Riera er farinn til Galatasaray.

Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur gengið frá samningum við spænska kantmanninn Albert Riera frá Olympiakos en leikmaðurinn gerir fjögurra ára samning sem er 3 milljón evra virði.
Galatasaray sagði á vef sínum að þessi 30 ára gamli leikmaður fái 2,7 milljónir evra fyrsta árið, 2,9 milljónir evra annað árið og 3 milljónir evra þriðja árið auk þess sem hann fær 7500 evrur fyrir hvern spilaðan leik.
Riera sem á að baki 8 landsleiki fyrir hönd Spánar kom til Olympiakos frá Liverpool síðasta sumar.
Galatasaray endaði í áttunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð en það er það versta hjá liðinu í mörg ár.
Félagið hefur keypt stórt í sumar, þar á meðal Fílbeinsstrendinginn Emmanuel Eboue, Úrúgvæann Fernando Muslera og Felipe Melo frá Brasilíu.

Heimild: AP