Fotbolti.net
05.01.07 - 09:17
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Romario aftur til Vasco (Staðfest)

Romario er kominn aftur til Vasco

Romario er kominn aftur til Vasco

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Romario, sem gerði garðinn frægan með Barcelona og brasilíska landsliðinu á sínum tíma, heldur áfram leit sinni að þúsundasta marki sínu á ferlinum og hefur gengið til liðs við Vasco da Gama.
Romario, sem verður 40 ára gamall seinna í þessum mánuði, fór í læknisskoðun og æfði létt í gær. Það var þó ekki auðvelt fyrir hann að láta það gerast en hann þufti að fá leyfi frá FIFA vegna þess að hann hefur spilað með tveimur félgum á undanförnum tólf mánuðum.

Þrátt fyrir að Romario sé ekki eins snöggur og þegar hann var uppá sitt besta er hann ekki ýkja langt frá því að brjóta þúsund marka múrinn en hann segist sjálfur hafa skorað 987 mörk. Aðeins Pele hefur skorað yfir þúsund mörk á ferlinum.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.